GOLFFÉLAGINN
Væntanlegt

Hvar tapast höggin þín?

Golffélaginn les hringina þína, finnur stærsta lekann í leiknum — og segir þér nákvæmlega hvað þú átt að æfa. Kaddi er þjálfarinn sem man alla hringina þína.

Í lokaðri prófun núna. Appið kemur fyrst í App Store.

Þjálfari sem þekkir tölurnar þínar

Flest golföpp sýna þér tölfræði fyrir einn hring. Golffélaginn leggur saman alla hringina þína — þvert á velli — og finnur hvað kostar þig raunverulega flest högg.

1

Þín eigin gögn

Skorkort úr Golfbox eða Golf GameBook, útflutningur úr Trackman, skjáskot af skorkorti — eða einföld handvirk skráning. Þú kemur með gögnin þín, við sækjum þau aldrei óumbeðið.

2

Stærsti lekinn

Greining sem raðar því hvar höggin tapast: teighögg, innáhögg, stutta spilið eða pútt. Mælt úr þínum hringjum, ekki ágiskun.

3

Sveiflugreining

Taktu sveifluna upp í appinu. Kaddi greinir myndbandið, bendir á það sem skiptir máli og tengir það við tölurnar þínar.

4

Spurðu Kadda

„6 högg á 14. braut — hvað gerðist?“ Talaðu við þjálfarann um einstaka holu eða hring og lagaðu bæði gögnin og planið.

5

Æfingar sem hitta

Æfingaplan sem miðar á þinn stærsta leka — ekki almennar ráðleggingar sem eiga við alla og engan.

6

Vinir og viðmið

Berðu þig saman við forgjafarhópinn þinn og fylgstu með vinunum. Þú ræður sjálf(ur) hvort þú finnist í leit.

Verð

Byrjaðu ókeypis. Öll tölfræði úr þínum eigin hringjum er innifalin — áskriftin bætir við þjálfaranum.

Ókeypis

0 kr.
  • Öll tölfræði úr þínum hringjum
  • Skráning og innflutningur án takmarkana
  • 5 nýjustu hringirnir í sögunni
  • Ein sveiflugreining til að prófa

Inneign

frá 0,99 $
  • 1 greining — 0,99 $
  • 5 greiningar — 3,49 $
  • 10 greiningar — 5,99 $
  • Rennur aldrei út

Stakar greiningar sem bætast ofan á áskriftina eða standa einar.

Þín gögn, þínar reglur

Golffélaginn sækir aldrei gögn um þig frá Golfbox, GameBook, Trackman eða Garmin án þess að þú komir með þau sjálf(ur). Það er ekki bara stefna — það er þannig sem appið er byggt.

Staðsetningin fer ekki neitt

Appið notar staðsetningu í símanum til að finna völlinn sem þú ert á. Hún er aldrei send til okkar eða þriðja aðila.

Þú getur eytt öllu

Reikningi og öllum gögnum er hægt að eyða úr appinu sjálfu — ekki með tölvupósti og bið.

Aðeins nafn og klúbbur sjást

Ókunnugir sjá aldrei forgjöfina þína eða hringina — bara nafn, klúbb og sameiginlega vini. Þú getur falið þig úr leit.